Don't fuck up! - Don't fuck yourself

Sælir dyggir lesendur!

Það er nóg að gera hjá mér þessa dagana, hljómsveitaræfingar, nemendafélagið, boxæfingar, skólinn og Supernova :P

Við í hljómsveitinni erum að ná tökum á tveimur lögum, erum samt alltaf eitthvað að leika okkur í QOTSA.

Lögin eru, Ode to Clarissa með QOTSA og Women með Wolfmother. Fyrirsögn færslunnar er quotað frá hljómsveitaræfingu, en þar quotuðum við það frá bíómynd sem ég veit ekki hvað heitir.

Allaveganna að skemmtilegri hlutum, Magni er kominn áfram í Rockstar Supernova. Hann var lang efstur og datt aldrei niður í 3 neðstu meðan á kosningu stóð. Ég vill meina að þetta sé allt mínum atkvæðum að þakka...

Bremsupúðarnir á Auði eru eitthvað að beila á mér, þarf að fara kaupa 4 stk svoleiðis. 

En ég fór í counter strike í fyrsta skipti í ár á Laugardaginn og ég held að ég sé búinn að kíkja smá á hverjum einasta degi síðan þá. Adrenalín flæðið sem fylgir þessum leik. Var búinn að steingleyma þessu!

Geir fékk nýja Accordinn áðan, vorum að skvera aðeins og keyrðum framhjá Olís úturbænum þar var allt stappað í busum að þrífa bíla. Ansi skemmtileg sjón .. :D

 

Busaballið, DJ HERMIGERVILL ÆTLAR AÐ FOKKING TRYLLA LÝÐINN.

Lag færslunnar er Glorious með Muse, man ekki hvort ég hafi haft það áður(það á það hvorteðer skilið)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Haha gaur þetta er ekkert úr neinni bíómynd...
Kyuss sögðu þetta á hljómsveitaræfingu áður en þeir spiluðu eitt lag ... ;)

Jóhann Aðalsteinn Árnason (IP-tala skráð) 31.8.2006 kl. 19:05

2 identicon

Shjett Ode to Clarissa er svo gott lag. Maður er bara komin með fiðring í magann, hvenær fær maður að heyra í ykkur spila?...allavegana þá er ég helvíti sáttur með lögin sem þið eruð að taka.

Hinrik Þór (IP-tala skráð) 3.9.2006 kl. 18:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband