Fiðrildahnífur í stað kærleikssnuðsins sem hinn óprúttni sýgur á.

audi_le_mans_quattro_concept_wallpaper_002_1024Það er búið að vera brjálað að gera í dag.. Balldagur!


Fór í skólann klukkan´hálf átta og var í honum þar til klukkan sló 7.


Vorum að sansa fyrir jólaballið, Land Og Synir leika fyrir dansi inni en svo úti porti mun Dj Robbi Diskó sjá um að halda hitanum uppi. Það er ekkert hálfkák í gangi..



Á morgun mun ég vakna snemma til að fara í söng og leikprufu, og einhverntímann þar í millitíðinni mun ég fara í útvarpsviðtal. Svo á mánudaginn er erfiðasta prófið mitt á þessari önn, STÆ303.

Það er ótrúlegt hvað það er bæði slæmt og gott að vera í forsvari félagslífs FVA. Það getur verið jafn yndislega skemmtilegt og það getur verið leiðinlegt. Sérstaklega þegar fólk er að hringja í mann eftir að miðasala er hætt og uppselt er á ball að betla miða. Þá þarf maður að vera vondi kallinn og neita. Mér finnst hryllilega niðurdrepandi að neita fólki um þann munað að skemmta sér með öðru fólki. En "Lives a bitch, then you marrie one."

Ég biðst formlegrar afsökunar á þeim óþægindum sem ég ku hafa valdið fólki sem hringdi í mig þar sem ég svaraði ekki, neitaði þeim eða var slökkt á símanum mínum :D

Dimmisjón var áðan, drulluflott..

Ekkert stress, verið hress og bless.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband