Færsluflokkur: Tónlist
Þetta er alveg snilldarmynd, tekin af besta ljósmyndara sem ég þekki ;P
Fannst útlitið orðið svart hérna á síðunni, svo ég ákvað að henda inn einni færslu.
Ég fór á Roger Waters tónleika í fyrradag, snarbilaðir tónleikar! :)
Vera af The Wall fannst mér virkilega skemmtilegt á tónleikunum, en Shine On You Crazy Diamond gefur manni alltaf gúsbömps.
Fékk mér nýjan geislaspilara í bílinn.
Pabbi reddaði lykil í gönginn.
Svo er verið að tala um bíladaga á Akureyri næstu helgi? hmm ha?
Vil nota tækifærið og þakka fólki almennt fyrir að koma með athugasemdir og að nenna að standa í þessu glataða "commentakerfi" sem blog.is býðir uppá!
Takk fyrir
___________________________________________________________________
np; Placebo - Infra Red
Snillingur sem veit hvað fyrirsögnin stendur fyrir!
Tónlist | Miðvikudagur, 14. júní 2006 (breytt kl. 22:15) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þetta er prinsessan, bróðurdóttir mín.
Smá punktar
- Er kominn með bílinn í hús..
- Ég er í hádegishléi í vinnunni
- James Marshall Hendrix eða Jimi Hendrix einsog hann er þekktur. er í uppáhaldi þessa dagana.
- 10 dagar í Arnór Smárason.
- 5 klukkutímar í að ég fari að þvo bílinn.
Guð blessi alla, halleljúa!
Tónlist | Miðvikudagur, 7. júní 2006 (breytt kl. 12:24) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Var að koma frá hótel ömmu.
Alltaf fær maður alveg ljúffengar máltíðir hjá henni.
- Lambakjöt
- Sykurhúðaðar kartöflur
- og alveg stjanað við mann.
- skorið kjötið
- hellt í glösin
- og ég veit ekki hvað og hvað..
- alltaf eftirréttur.
- og helst borða eins mikið og þú getur í þig látið!
Og það fyndnasta við það er að ég má ekki gera þetta sjálfur. Amma mín er svo góð að hún leyfir það ekki. Kannast ekki einhver við þetta úr sveitinni??
___________________________________________________________________
En til að gefa ykkur, diggum lesendum forsmakk á komandi sælu.
Þá er ég að fara fjárfesta í bíl. Á bara eftir að ganga frá kaupunum.
Bílinn heitir Audi, og
- er fjarki(a4).
- dökkblár
- 1997 módel
- keyrður 104þúsund(ekki neitt)
- 1800 vél sem skilar 125 hestöflum
- ca 1200kg.
Ætli ég verð ekki byrjaðu að heilla bæjarbúa með honum undir lok þessara viku :D
Neikvæð comment um glataða fjárfestingu eru afþakkaðar!
Tónlist | Sunnudagur, 4. júní 2006 (breytt kl. 19:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Aldís, kærasta Sindra. Eignaðist prinsessu í nótt. Stelpan er 12 Merkúr og 50 cm.
Núna á ég bróðurdóttur!
Skemmtilegt að segja frá því, að Sindri bróðir var í general prufu á lokasýningu skólan síns(lokaverkefnið) í gærkvöldi, og svo í kvöld er frumsýning. Ótrúlega heppin að prinsessan skuli hafa ákveðið að koma inní heiminn svona "á milli" :D:D:D
Þór skrifar í góðu skapi..
np; Muse - New Born
Eitt klassískt!
Tónlist | Föstudagur, 2. júní 2006 (breytt 3.6.2006 kl. 12:17) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Dömur mínar og herrar
Nú er illt í efnum að vera Skagamaður, ég hreinlega skammast mín fyrir það þessa dagana.
Utanbæjarmenn nýta sér það til fullnaðar að geta niðurlægt Skagamenn fyrir lélegt gengi í boltanum.
Ég viðurkenni það fúslega að gengi okkar manna hefur ekki verið uppá sitt besta með sína stjörnuprýddu menn. En einsog máltækið segjir, þá þýðir ekki að leggja árar í bát þó að þú sért þreyttur .. eða þó móti blási.
Nenni ekkert að tala meira um þessa hörmungaratburði sem hafa átt sér stað seinustu vikur.
Við bræðurnir erum einir heima, steiktum okkur hamborgara áðan, JETTEGOD! Tókst nú samt að fá sjóðandi olíu á hendina. Það var heitt. Fylksi var að koma frá fyrsta vinnudegi sínum í IKEA. Allt gott þaðan að frétta.
Mér finnst það mjög leitt fyrir ykkur 50Cent áhugamennina að færslan skuli hafa eyðilagst. Því þið hefðuð eflaust lært eitthvað um töffarann.
Hvað ætli þetta muni kosta?
np: Led Zeppelin - Ten Years Gone
Gaman að segja frá því að John Bonham trommuleikari Led Z.
hafði orðið 58 ára í dag, en því miður lést hann úr áfengiseitrun.
Hann er talinn vera einn besti trommuleikari sem móðir jörð
hefur alið af sér.
Svo eiga líka Clint Eastwood(76) og Colin Farrel(30) afmæli í dag. Báðir mjög "heitir" gaurar í kvikmyndabransanum.
Tónlist | Miðvikudagur, 31. maí 2006 (breytt kl. 21:15) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Var búinn að vera svo lengi að gera þessa helvítis grein um 50 Cent að vefþjónninn skráði mig automatic útaf. Og þegar ég skráði mig aftur inn þá hvarf greininn og ég er ekki ánægður.
Tónlist | Þriðjudagur, 30. maí 2006 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Tónlist | Mánudagur, 10. apríl 2006 (breytt 21.4.2006 kl. 04:07) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)